Klukkan

Auglýsing

Aríel er orđin 1. árs!

15. febrúar 2009 klukkan 20:32
Þann 15. febrúar fæddist lítil snót í heiminn, ásamt þrem öðrum tíkum af papillon ætt. Þetta voru fyrstu hvolpar mömmunar, Ídu. Strax hafði fólk orð á því hve einstaklega andlitsfríð litla snótin var. Í fyrstu var hún kölluð Góa, en eftir að litla snótin hlaut eiganda nefni ég hana Ariel. Litlu Góu nefndi ég Ariel eftir litlu hafmeyjunni. Þar sem Ariel var bæði einstök og fögur var hún nefnd í ættbók: Hálsakot's I'm your Ariel dream.
Nú í dag er ár liðið síðan að Ariel fæddist. Strax eftir að ég eignaðist Ariel var hún ekki lengi að stimpla sig inn í líf mitt! Þetta ár hefur verið frábært og Ariel hefur glatt mörg hjörtu, bæði stór og smá.
Ariel hefur heillað fjöldann allan af fólki, sýnt á þrem sýningum og lokið hvolpanámskeiði með einkunnina 10!

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Ariel,
hún á afmæli í dag!












Diljá Helgadóttir
3 athugasemdir

fyrsta sýning ársins framundan!

08. febrúar 2009 klukkan 19:18

Á mánudaginn kláraði ég heimsóknavinanámskeið Rauða krossins. Ariel fær samt ekki réttindi fyrr en eftir 1 ár Surprised Á þeim tíma ætla ég að undirbúa hana vel undir þetta skemmtinlega verkefni. Síðan á sunnudaginn verða Ariel og systur hennar 1 árs gamlarWink Án Arielar mundi vanta stóran hluta af sjálfri mér, frá því ég fékk Ariel hefur hún verið æði þessi elskaInnocent


Ariel, phoebe og Mulan giska ég á:o) í Garðheimum seinustu helgi.


                                                                                                           Diljá Helgadóttir

Nýtt ár er svo sannarlega hafið og fullt af nýjum tækifærum:)
Nóg hefur verið í gangi bæði hjá mér og Ariel!
Í morgun varð ég ásamt liðinu mínu, HK íslandsmeistari innanhúss í knattspyrnu annað árið í röð! Liðið mitt samanstendur af góðri liðsheild með frábærum leikmönnum.
Mamma tók Ariel að sjálfsögðu með að horfa á leikina sem skiluðu okkur titilinn. Margir töluðu um að þetta gæti verið næsta lukkudýr HK enda full af kátínu og gleði. Eftir það skutlaðist mamma með Ariel á smáhundadaga í Garðaheima, sem var rétt hjá þar sem keppnin var haldinn í Austurbergi. Nóg um það!
Ég skráði semsagt Aríel í ræktunardóm og mig í unga sýnendur. Og ég mun hugsanlega koma til með að sýna hana í þessu tveimur greinum, enn er ég samt óviss með ræktunardóminn.
Hvolparnir hennar Ástu Maríu eru 3 vikna í dag og þær eru algerar rúsínur, ég kíkti á þær áðan.

 Þríeykið þær Píla, Trítla og Snælda.
Á morgun sæki ég svo heimsóknarnámskeið Rauða Krossins:D Ég hlakka ekkert smá til! Eftir kvöldið á morgun verð ég kominn með réttindi sem heimsóknarvinur og þá er bara eftir að Ariel verður metinn hjá Brynju Tómer. Ég horfði svo sannarlega bjart fram á við enda jákvæðni alltaf best í lífinu og á henni nær maður langt.
Bestu kveðjur, Diljá og hálsakots I'm your Ariel dream
Diljá Helgadóttir
2 athugasemdir

loksins loksins:)

23. janúar 2009 klukkan 11:34

Jæja það var komin tími til þess að ég bloggaði:) En það er búið að vera nóg að gera hjá mér undafarið!
Mér var boðið í myndatöku í gær og tók ég að sjálfsögðu Ariel með mer<3 :) ég læt myndirnar fylgja með.
En á þriðjudaginn byrjaði Ariel að lóða:) og hún var seinast að lóða 3. september ' 08!
Hún klárar þetta fyrir sýninguna því hana ætla ég að sýna bæði í ungum og í ræktunardóm.
Þrátt fyrir að Ariel sé að lóða þá tekur maður varla eftir því:) Það kemur ekki einu sinni blóðblettur á gólfið né á teppið okkar. Enda er hún dugleg að þrífa sig stelpan mín:)
Ída eignaðist svo hvolpa aðfaranótt sunnudags og voru það þrjár stelpur:) þær eru alger æði, og enn og aftur til hamingju með gullmolana Ásta María og co.
Ég er með algera ritstíflu svo ég segi þetta bara gott í bili:)
Bestu kveðjur,
Diljá og Ariel:)


ljósmyndari: guðbjörg@


Princess out of place

Diljá Helgadóttir
8 athugasemdir

gleđilegt nýtt ár:)

02. janúar 2009 klukkan 19:41
Annar dagurinn af nýja árinu 2009 er nú að líða. Tíminn hefur verið alltof fljótur að líða, en fullt af minningum hafa orðið til. Maður man ekki bara eftir því besta, heldur lika eftir því sem maður missti af og manni þótti agalegt á árinu. En byrja vill ég á að þakka ykkur fyrir það sem er að líða, þetta er búið að vera meiriháttar ár og brosið sem ég er með á mér núna þegar ég skrifa þetta, segir meira en þúsund orð:)
15. febrúar fæddist Ariel, mín hinsta ósk í heiminn. Hana á ég með Ástu Maríu og er hún hjá mér á hálfum fóðursamningi. Ég og Ariel höfum sótt hvolpanámskeið í hundaskólanum hundalíf, sótt 2 hundasýningar og núna erum við að undirbúa okkur fyrir að Ariel gerist rauða kross hundur. 
Þrátt fyrir smægð tegundarinnar þá er papillon minnstri blindrahundur í heiminum. 
Þess má einnig geta að Ariel hefur heimsótt allt sem manni dettur í hug. Á þorláksmessu fórum við fjölskyldan á matsölustaðinn Vegamót og Ariel fékk að sjálfsögðu að sita á stól við borðið eins og hinir fjölskyldumeðlimirnir. Ég hef marg oft tekið hana með í strætó, labbað laugarveginn fram og aftur og farið inn í allar búðirnar með Ariel í taum eða í fanginu á mér. Já ýmislegt er hægt, sé farið með rétta hugarfarið í það!
Seinasta dag ársins, 31 desember er sá dagur sem margir hundar hverfa og verða fullir að ótta. Og því undirbúðum við okkur vel undir allar sprengjurnar og lætin. Ariel var ekki vitund hrædd! Skottið dofnaði reyndar smá þegar mestu lætin fóru yfir, en Ariel lagðist bara róleg í búrið sitt og ég lagðist í rúmið mitt við hliðinni á henni í stað þess að fara út að sprengja. Fyrr um kvöldið um níu leitið fyrir skaupið sóttum við brennuna árlegu og Ariel kom að sjálfsögðu með:) Og henni leið bara óskup vel þarna í hitanum, enda var henni lika veitt mikill athygli af krökkunum sem komu og klöppuðu henni rólega.
Núna liggjum við tvær stöllur bara í rúminu mínu og höfum kósý og þakka viljum við kærlega fyrir allt sem hefur gerst á árinu og er að líða.
Enda vill ég þetta með myndum eins og að vana.
E
kki einungis primadonna, heldur fyrsta flokks!


Í desember í snjónum, hvern finnst ykkur hún minna ykkur á?:)
alltaf gaman
 
í jólaprófunum, lá ariel alltaf á skólatöskunni minni:) svo mamma skellti einni mynd af því;*
 
h
alló:D
sofnaði næstum í hvíta sófanum hennar ömmu í nýju jólaskápunni sinni:)

ariel þó!

jólavoffinn minn:)
 
 við verðum að læra að brosa:D
Diljá Helgadóttir
7 athugasemdir

jólajólajóla:)

22. desember 2008 klukkan 14:37

mín drög að jólakorti frá fjölskyldunni: Vá það eru bara strax komin jól! Skrítið hvað tíminn er fljótur að líða. Hjá okkur í Kópavoginum er allt gott að frétta og fjölskyldan hefur meirasegja stækkað. Lítill, sætur, loðin, hvítur og brúnn sólargeisli kom inn í líf okkar í maí á þessu ári og passar vel við sófana tvo í stofunni, þann hvíta og þann brúna:)
Við hér á bæ erum svo sannarlega komin í rétta gírinn enda ekki annað hægt með æðislegan kátan æðibita sem fylgir okkur dag hvern! Við höfum aldrei verið spenntari fyrir hundajólum. Kannski ekki rétt af mer að fullyrða það fyrir hönd allra, allt í lagi ég hef aldrei verið jafn spennt enda ekki skrítið þar sem nú á ég lítinn frábæran voffa hana Ariel og að sjálfsögðu fylgir hún okkur í gegnum jólin:)
Í gær skárum við út laufabrauð og Ariel fylgdist vel með. Ætli hún sláist ekki bara í hópinn um næstu jól og nagi út nokkur laufabrauð:D tíhí hún Ariel okkar er alveg hreint "perfection" það orð lýsir henni best:)
Og Ásta María kærlega til hamingju með bumbubúann alveg hreint æðislegt:) .
En aukþess er ég með eina spennandi frétt þar sem Ariel mun gerast innan árs rauða kross hundur. Ég sæki hugsanlega heimsóknarnámskeið í febrúar og svo metur Brynja Tomer, Aríel. En ég fæ ekki réttindi fyrr en Ariel verður 2 ára gömul:) Svo ég bíð bara spennt og hlakka til enda tíminn fljótur að líða!
En þar sem ég vill kalla þetta jólablogg óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og takk fyrir það sem er að líða frá okkur!
Bestu kveðjur, Diljá, Ariel og fjölskylda:)


 


Við vinkonurnar þrjár:) Hanna, Ariel og ég ♥ 

Diljá Helgadóttir
3 athugasemdir

Endalaus velgengi!

01. desember 2008 klukkan 19:41

Komiði öll blessuð og sæl:)
Þar sem ég var búnað lofa alveg heljarinnar bloggi ætla ég mér að stenda við það því það er frá nógu að segja!
Rétt eftir 14 nóvember, þegar ariel var 9mánaða fór ég í það að láta fjarlæga tvær barnatennur, efri augntennurnar. Það gekk prýðilega. Ariel var ekin uppá dýraspítala í morgunsárið og sótt aftur klukkan eitt. Tennurnar hennar líta auðvita mjög fallega út og hún Ariel jafnaði sig fljótt.
Síðasta miðvikudag voru lokin á opnu tímunum fyrir smáhundana sem ég er búnað sækja núna í vetur hjá hundalíf. Anna Jóna og Ása er svo sniðugar og settu um hundafimi keppni. Ég og Ariel fórum í gegnum brautina á "no time" og fengu tímann 16,3 sek minnir mig:)! Brautin: Vefa-sikksakk, rör,fara hringinn í kringum prik, fara yfir kassa og að lokum enda í öðrum "kassa" hafa augncontact í 2sek!
Mér fannst mjög skrautlegt hvaða hundategundir tóku þátt en það voru m.a. amerískur cokker, stór púðla, bichon frize, papillon, shi'tzu, whippet, griffon, tjúar os.frv. en Ariel mín vann og það koma auðvita ekki á óvart:)
Ariel var í 1. sæti í hundafiminni og fengum við að sjálfsögðu heiðurinn i verðlaun:D
En nú frá öðru í annað því það er meira að segja frá!
Við Ariel höfum lokið 10 tímum grunnnámskeiði hjá hundalífi... og lesið áfram:)


Hér með staðfestist með undirritun að Diljá Helgadóttir hafi sótt grunnnámskeið með hundinn Ariel. Námskeiðinu lauk með prófi og eru einkunnir í bóklegum hluta 100 stig og æfingum 100 stig.
Dags. 30/11 2008.                          F.h. hundalífs Þórhildur Bjartmaz
________________________________________________________________________________________________________
Frábær árangur, fullt hús í öllu!
 Meira er það ekki í bili ég lofa eflaust jólabloggi og myndum rétt fyrir jól.
Svo bið ég þá sem skoða bloggið að komennta því það er ekki gaman að halda að maður bloggi bara einungis fyrir sjálfan sig.
Bestu kveðjur,
Diljá og Ariel*



ariel 7 eða 8 vikna!

Diljá Helgadóttir
5 athugasemdir

mynd:)

17. nóvember 2008 klukkan 19:28
hæhæ:D
ætlaði bara að hafa þetta stutt og lofa risa bombu bloggi næstu daga:)
Enda með myndum af skvisunni;;

lítil ponsa í kringum 4-5 mánaða standi mynd:)

ariel þegar hun var tábrotin, í maí* hún heldur ávallt fegurðinni!

þær fallegustu á heimilinu:)

fallegu bakround:D
Diljá Helgadóttir
1 athugasemd

Ćttbókin komin inn

02. nóvember 2008 klukkan 12:57
Komiði svo öll sæl og blessuð:)
  Ariel er núna í hundaskólanum og hér ríkir mikill og skemmtinleg þjálfun:) Svo má ekki gleyma að á miðvikudögum þá förum við í opnutímana. En í augnablikinu sefur hún Ariel "kjölturakkinn" minn á lærunum á mér meðan ég held áfram að skrifa þetta langþráða blogg!
Í dag förum við í hundaskólann og verður bóklegt próf sem ég hlakka mikils til enda erum við velundirbúnar til að takast á við allt sem liggur yfir;')
Þess má geta að um daginn skellti ég svo hér inn ættbókinni hennar Arielar en hana er hægt að sjá ef þú klikkar hér að ofan á "hálsakots I'm your Ariel dream" Endilega að skoða þennan link einnig þar stendur allt um Ariel og hvað hún er æðisleg:)
Ég er orðin hrikalega spennt þangað til að næsta sýning verður, en hún fer ekki fram fyrr en í lok febrúar! Ég spenni bara greipar og vonast til að papillondeildin og fleiri sérdeildir taki sig til og haldi flotta sérsýningu eins og í janúar áþessu ári:D Því fyrr því betra, því ég er svo spennt fyrir að sýna Ariel.
En nú fer að styttast í jólin, snjór er úti og Ariel skemmtir sér vel í honum, Myndavélin mín er eyðilögð og kannski það myndavél lendi efst á óskalistanum í ár;D Og ég get því engar myndir tekið í bili ;/!!!
Þetta verða fyrstu jólin okkar Arielar og hér mun ríka mikill jólaandi, Ariel verður með slaufu og vel ilmandi. Vá hvað ég hlakka mikið til !
Ég ætla að enda þetta núna og bið ykkur enn og aftur að skilja eftir kveðju ;o)
 

flottust allra;) En okkur langar rosalega að fjárfesta í svona röri, því ariel finnst það svo gaman. Vitiði hvar ég get keypt svoleiðis :')?

Diljá Helgadóttir
9 athugasemdir

Hun er sĺ perfekt!

12. október 2008 klukkan 18:27

Ariel er núna á fullu í hundaskolanum og komin mjög langt í að læra heilmikið. Ása hundaþjálfari sparar aldrei jákvæðu orðin og segir " Ariel, hun er bara så perfekt! " . Á sunnudögum erum við í hundaskólanum, við erum með fimm öðrum hundum, tveim blendingum þeim Perlu og Gúrú, Myntu whippet, Enskum Bulldog og Rooney boxer. Ása kennir okkur og þjálfar. Það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur og þeir þættir sem við erum m.a. búnað fara í er: Trix "sestu, ligg, stå", þroski hundsins, rétt næring og umhirða, innkall, taumgöngu o.s.frv. Við erum búnar að setja okkur nokkur markmið sem hljóða svo:

  • Eye-contact
  • Sestu, ligg og stå
  • Kyrr
  • Bannorðið nei
  • Gjörðu svo vel
  • Taumganga
  • Innkall - komdu.
  • Nafnið sitt "Ariel"
  • Fylgja manni laus í taumi.

Auðvita má maður ekki vera monta sig en Ariel kann þetta allt:) Sumt þarf bara að fínpússa aðeins og bæta sumu við. Þið megið endilega komennta ef ykkur finnst eitthvað nauðsynlegt vanta í markmiðin okkar:)
Þrátt fyrir að Ariel sé perfection, þá sagði Ása reyndar að ég mætti setja minni kröfur og meiri leik;).
En ekki má gleyma að Ariel er lika i opnum æfingatímum reyndar einungis fyrir smáhunda á miðvikudögum frá 7 til 8. En Ása og Anna Jóna sjá um þá tíma. 
  Núna er næstum hálft ár í næstu sýningu, en ég held samt áfram og kenna Ariel "stå", tennur og standa uppá borði. Ég er líka nýbyrjuð að æfa hana í að hreyfa fæturna hennar og það gengur ansi vel. Hvet ég alla að gleyma ekki að æfa hundanna sína þrátt fyrir að langt sé í næstu sýningu.
Myndavélin mín er eyðilögð, ég tók aldrei svona dýra hluti með mer i skolann svo geri ég það einu sinni og "búmm" myndavélin í vondum gír:/ Ég er ekkert smá svekkt yfir þessu og tek því miður ekki tekið neinar myndir af skvísunni og skelli því bara eldri myndum af henni hér inn:)

 


jesús hvað ég elska hana Ariel mina:)

giskaðu á hvar ariel sé:)?

ég veit ég er sæt:)

Diljá Helgadóttir
4 athugasemdir

Firđildi eiga til ađ smakka firđildi:)

30. september 2008 klukkan 22:51
Heil og sæl:)
Ástæðan fyrir fyrirsögninni  er að nuna eru alveg fullt af firðildum. Bæði úti í garði og sum þeirra sníkjast inn;p
Kom ég svo að Ariel um daginn japplandi á þessum óþverra, og ekki í fyrsta sinn enda er hún mikill áhuga maður um flugur og firðildi. Fylgist vel með þeim daginn inn og daginn út!
En núna fjalla ég að sjálfsögðu um aðal umræðuefnið haust sýninguna:)
Helgin byrjaði snemma, á föstudeginum sýndi ég í ungum sýnendum. Það gekk prýðilega með hana Phoebe skvísu, sem er papillon í eigu Ástu Maríu Guðbergsdóttur. Besta papillon tík sunnudags og besti papillon hundur sumarsýningarinnar:-)
Svo sýndi Kristín Sif, Thalíu sína ekkert sma flott hjá þeim:D einnig komst Karen í 7 manna urslit með tango:) glæsilegt, þess ma geta að á Karen lenti i 2.sæti á mjóhundasýningunni en þá með Chandler.
Vinkonur mínar mættu að horfa og biðu í 2klst eftir að ég mundi sýna, ég gæti ekki verið stoltari af þessum æðibitum. Þær mættu vel búnar til leiks, þá í Neon lituðum fötum því að áætlunin var svo að skella sér á skólaball beint eftir sýninguna og framhaldið fór eins og því var ætlað.
Ekki lenti ég í sæti í ungum, en vill eg óska þeim sem lentu í sæti innilega til hamingju bæði með frábæran árangur á sýningunni og þetta árið:)
Laugardagurinn fór svo að sjálfsögðu í fótbolta en Ariel fær alltaf að troða sér með, enda gerir hún allt skemmtinlegra þó að það sé skemmtinlegt fyrir. Það fór fram uppskeruhátíð á vegum knattspyrnudeildar HK. Hlaut ég þar Sóknarmaður ársins, og má segja að það hafði verið hápunktur dagsins:) Svo lá leið mín á HK-Breiðablik þar sem erkifjendurni mættust. Og lauk HK landsbankadeildinni með sigri á Breiðabliki 2-1.
Meðan á því stóð skutlaðist pabbi með Ariel í snyrtingu til Ástu Maríu og hún kom eins og engill til baka:) Svo lékkert og pen, ég passaði lika rosalega vel að hún héldi sér hreinni og það gekk auðvita vel:D
Svo kom að sunnudeginum, aðaldeginum. Vöknuðu við píur um 8 á staðartíma. Allt gekk vel og við vorum komnar upp í reiðhöll kl. 8.30, til þess að keppa á sýningu. Við mættum fyrstar, svo kom Tindra skvísa, en hún er systir Arielar.
Ástu María, Jóna&co komu svo stuttu seinna og þá fór að styttast í aðal stundina. Ég tel Ariel hafa verið mjög vel undirbúna, bæði andlega og líkamlega. Svo löbbuðu hún og Ásta María á sýningargólfið. Allt gekk æðislega vel, enda var nokkurra vikna undirbúningur að baki. Hún endaði í 3.sæti og með heiðursverðlaun:D, gerist ekki skemmtinlegra!
Umsögnin sem hún hlaut hljóðar svo: Nice type, very good temprament, could be better in front. En það er bara eitthvað sem kemur með tímanum og aldrinum:)
Phoebe endaði svo sem besta tík dagsins og Minnie mús önnur :) það fannst mer svo gaman.
 Svo hengu eg og Kristín Sif þarna allan daginn og áttum goðan hádegisverð:) Sem við munum vel eftir:D
Svo stóð Erro hennar Írisar upp í sem Besti rakki og BEST IN SHOW 2! Annað sinn á þessu ári þar sem papillon verður BIS 2 og í fyrra skiptið var það Herkúles pabbi Arielar:)

Mega allir papillon eigendur vera stoltir af þessari yndislegu tegund sem þeir eiga:)
Og innilegar hamingjuóskir til allra sem bæði voru með í sýningunni og þeirra sem unnu til verðlauna!
Bestu kveðjur, Diljá og Hálsakots I'm your ariel dream.

litli prakkarinn þinn!

bestu vinkonurnar saman. Ariel (fyrir ofan) fann hérna gríðarlega þæginlegt bæli með því að leggjast uppá systur sína hana Mulan(fyrir neðan).
Diljá Helgadóttir
3 athugasemdir